Fyrir 4-5 manns
Innihald:
1 kg hvítur fiskur (t.d. Langa, þorskur, ýsa eða steinbítur)
3–4 stórir ferskir tómatar (má líka nota kirsuberjatómata)
10-12 mjúkar döðlur, saxaðar
10-15 grænar steinlausar ólífur
3 hvítlauksrif, skorin eða pressuð
2 msk ólífuolía
½ sítróna (safi)
10 gr Fersk basilika eða steinselja, söxuð
Salt og pipar
Aðferð:
Skerið fiskinn í hæfilega bita og setjið í eldfast mót.
Skerið tómatana í bita og bætið þeim ásamt ólífum, söxuðum hvítlauk og döðlunum og dreifið yfir fiskinn ásamt smá ólífuolíu. Kryddið með salti, pipar og kreistið yfir hálfa sítrónu og kryddjurtir yfir.
Dreypið jafnvel smá extra ólífuolíu yfir og bakið við 180°C í um 20 -25 mínútur, þar til fiskurinn er eldaður í gegn. Skreytið með ferskum kryddjurtum áður en borið er fram.
Borið fram með:
• Léttu salati, jógúrt sósu og jafnvel kúskússalati