Engifer & kollagen skot
Safi úr 2 sítrónum
Væn fersk engiferrót, ca 8 cm, þrifin
1 líter vatn
2-3 msk akasíuhunang eða hlynsýróp
2 -3 msk Feel Iceland kollagen
Allt sett í góðan blandara og blandað vel saman.
Sumir velja að síja hratið frá og hella þannig í flösku.
(Mæli þá með að setja hratið í klakabox og frysta og nota í shake-a og te)
Geymist í viku í ísskáp
Ég set líka oft 1-2 tsk Túrmerik duft og 1/4 tsk svartan pipar út í og þá verður þetta skot enn meira bólgueyðandi.
Frábær drykkur til að fá sér skot á morgnanna