- Allt um heilsunámskeiðin mín-

Ég hef brennandi áhuga á að búa til dýrindis, nærandi máltíðir sem gerðar eru úr hreinu og góðu hráefni, Síðustu 12 árin hef ég farið í heimahús og verið með matreiðslunámskeið.

Þau virka þannig að ég kem með allt hráefni og allar mínar græjur með mér. Þið bjóðið til ykkar 9-12 vinum í skemmtilega og fræðandi ca. 3 klukkutíma kvöldstund með mér. Ég byrja á því að gera einhvern gómsætan drykk sem hjálpar meltingunni og gerir ykkur sæt/ar. Svo geri ég nokkra litla rétti fyrir framan ykkur sem þið gæðið ykkur á einn á eftir öðrum. Ég enda svo með að hafa hráfæðiseftirrétt sem þið njótið til hins ítrasta.

Við spjöllum mikið um heilsu og ég gef góð ráð ásamt því bara að hafa gaman, peppa hvert annað upp og njóta.

Endilega hafið samband við mig til að bóka námskeið og fá upplýsingar um verð og lausar dagsetningar á jana@jana.is

Ég er höfundur uppskriftabókarinnar: Healthy & Pure, sem inniheldur safn af uppáhalds hollustuuppskriftunum mínum sem ég bauð upp á á Happ í Lúxembourg.

Uppskriftirnar í bókinni eru allar frekar auðveldar en ég geri mikið af því að hafa uppskriftir frekar einfaldar og fljótlegar, en samt hollar og góðar.

Mér finnst mjög gaman að deila því sem ég geri inn á Instagram reikninginn minn og vil geta deilt með sem flestum þegar ég þróa nýjar uppskriftir.

Ég vona að þessi síða geti hjálpað þér í að finna nýjar og hollar hugmyndir fyrir þig og þína til að prófa í eldhúsinu.

Ef þú ert með spurningar, ábendingar eða með hugmynd að samstarfi við mig, sendu mér endilega póst á jana@jana.is