Hafrakökur sem eru frábærar í morgunmat
Þú verður að prófa þessa ljúffengu
Hafra morgunverðarkökur - þær eru einstaklega saðsamar, með góðum trefjum, smá súkkulaði og fáum innihaldsefnum- auðveldar að hræra saman í skál og baka í um 15 mínútur í ofni, tekur allt undir 20 mínútum og þú ert komoin með þessar dásamlegu kökur, virka sem frábær morgunverður eða bara hvenær sem er yfir daginn
Innihaldsefni:
1,5 bollar haframjöl (160 gr)
1 egg
2,5 mjög þroskaðir bananar
1 tsk lyftiduft
1 tak vanilla
2 msk brædd kókosolía
Handfylli af súkkulaðibitum
1/2 tsk kanill
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C.
Stappið banana og hrærið saman við eggin. Bætið síðan restinni af hráefnunum út í og blandið vel saman.
Leggið bökunarpappír á bökunarplötu. Mótið kökurnar með skeið eða ísskeið — uppskriftin gefur um 14 kökur.
Bakið í um 15–17 mínútur.