Tahini smákökur með möndlumjöli

Hráefni (ca. 10–12 kökur)

  • 1 bolli tahini MUNA (hrært vel áður)

  • 1 bolli möndlumjöl

  • ⅓ bolli akasíuhunang eða hlynsýróp

  • 1 egg

  • ½ tsk matarsódi

  • ½ tsk vanilluduft eða dropar

  • smá sjávarsalt

  • ½ tsk kanill

  • smátt saxað dökkt gæða súkkulaði

Aðferð:

Hitaðu ofn í 175°C og settu bökunarpappír á plötu.

Hrærið tahini, sætu og egg saman þar til slétt. Bætið möndlumjöli, matarsóda, vanillu og salti saman við. Mótið litlar kúlur, leggið á plötu og þrýstið létt niður. Bakið í 8–10 mínútur – þær eiga að vera mjúkar í miðju.

Látið kólna alveg áður en þær eru teknar af plötunni (þær stífna við kólnun).

Previous
Previous

Hafrakökur sem eru frábærar í morgunmat

Next
Next

Súkkulaði kúrbíts hleifur