Súkkulaði kúrbíts hleifur

Þessi ljúfi súkkulaði hleifur er frábær leið til að lauma smá grænmeti inn í baksturinn án þess að það finnist á bragðinu. Kúrbíturinn gefur hleifnum dásamlegan raka og gerir hann ótrúlega mjúkan og safaríkan. Fullkominn með kaffinu eða þegar þú vilt dekra við þig og aðra með einhverju góðu og nærandi.

  • 2 bollar rifinn kúrbítur (kreistur létt)

  • 2 egg 1/2 bolli grísk jógúrt frá Arna

  • 1/2 bolli akasíu hunang eða önnur sæta

  • 1/4 bolli brædd kókosolía

  • 1 tsk vanilludropar

  • 3/4 bolli heilhveiti eða spelt

  • 1/4 bolli kakóduft

  • 1 tsk lyftiduft

  • 1/2 tsk matarsódi

  • 1/2 tsk salt

  • 1 tsk kanill

  • 1/4 bolli dökkt súkkulaði (70%+), saxað (valfrjálst)

Aðferð:

Hitið ofn í 175°C. Klæðið form (eða smyrjið).

Hrærið saman egg, jógúrt, sætu, olíu og vanillu. Blandið þurrefnum saman í annarri skál.

Blandið þurrefnum varlega saman við blautu blönduna. Hrærið kúrbít og súkkulaði saman við.

Hellið í form og bakið í 35–45 mín, eða þar til prjónn kemur hreinn út.

Leyfið að kólna aðeins áður en borið fram.

Berið fram með slettu af griskri jógúrt + kakónibbum, Ferskum berjum eða einfaldlega ein og sér

Previous
Previous

Tahini smákökur með möndlumjöli

Next
Next

Próteinríkar bollur