Fersk sítróna, silkimjúk grísk jógúrt, stökkt kex & hvítt súkkulaði
sumarið í einu glasi🍋
Fyrir 4 glös
500 gr grísk jógúrt frá Arna (Hrein eða létt)
2 msk akasíuhunang eða hlynsíróp
Börkur af 1 sítrónu
sítrónusafi úr 1/2 sítrónu
gróft kex, mulið gróflega
Skraut
50 g hvítt súkkulaði, saxað gróflega
1–2 tsk sítrónuolía eða góð ólífuolía með sítrónukeim
Rifinn sítrónubörkur
Æt blóm (valfrjálst)
Aðferð
Blandið saman grískri jógúrt, hunangi, sítrónuberki og sítrónusafa í skál.
Myljið kexið
Skiptið kexblöndunni í 4 glös.
Setjið jógúrtblönduna yfir kexið.
Stráið söxuðu hvítu súkkulaði yfir.
Dreypið smá sítrónuolíu yfir hvert glas og skreytið með sítrónuberki og blómi.
Geymið í kæli í 20–30 mínútur áður en borið er fram.
Jana’s tips 💛
Má útbúa allt að sólarhring áður.
Fyrir meiri ferskleika má bæta ferskum bláberjum eða hindberjum á toppinn
Ef þú vilt sætari útgáfu skaltu bæta 1 msk af hunangi til viðbótar í jógúrtblönduna.