Toffee Crisp súkkulaðibitar
Döðlur ásamt möndlusmjöri og pöffuðu kínóa gefa þessum bitum bragð sem minnir á Toffee Crisp. Þegar þeir eru svo hjúpaðir með þykku lagi af dökku súkkulaði verða þeir einstaklega ljúffengir.
250-300 gr döðlur, steinlausar
170 gr möndlusmjör (1 krukka frá Muna)
50 gr pöffað kínóa (fæst i heilsudeild Netto)
150 gr dökkt gæða súkkulaði
æðislegt að strá dash af grófu sjávarsalti yfir bitana (valfrjálst)
Aðferð:
Setjið döðlurnar í matvinnsluvél og maukið þar til þær verða mjúkar og klístraðar.
Bætið möndlusmjörinu út í og blandið vel saman.
Hrærið pöffuðu kínóanu saman við með sleikju eða skeið.
Þrýstið blöndunni í lítið form eða box klætt bökunarpappír.
Setjið í frysti í 20–30 mínútur þar til blandan er orðin stíf.
Bræðið dökka súkkulaðið.
Skerið krönsí döðlubotninn í stangir eða bita og dýfið þeim í súkkulaðið, eða hellið súkkulaðinu yfir í einu lagi, frábært að strá smá af grófu sjávarsalti yfir bitana. (valfrjálst)
Látið súkkulaðið storkna í kæli áður en borið er fram.
Geymist í loftþéttu íláti í kæli í allt að viku eða í frysti í allt að 3 mánuði.