Creamy Kóríander & klettasalat dressing

Græn, mjúk og nærandi dressing sem lyftir hvaða rétti sem er upp á næsta stig ✨

Ferskt ruccola og ilmandi kóríander blandast saman við kasjúhnetur og límónu og skapa silkimjúka áferð með léttu sætubragði.


Þessi dressing er einföld, hrein og full af lífi – fullkomin yfir salat, Mexíkönsku, með bökuðu grænmeti eða sem ljúffeng dýfa

  • 1 box VAXA klettasalati (ruccola)

  • 1 box VAXA kóríander

  • ½ bolli kasjúhnetur (helst lagðar í bleyti í 15–30 mín)

  • 1 hvítlauksrif

  • Safi úr ½–1 límónu

  • 3 msk ólífuolía

  • 1–2 msk hunang eða agave

  • 2–4 msk vatn (eftir þykkt)

  • Salt og pipar

Aðferð

Leggðu kasjúhnetur í bleyti (ef þú hefur tíma – gerir hana extra mjúka)

Settu allt sama i krukku sem að töfrasproti passar í og blandaðu vel saman. Eða settu i blandara og blandaðu vel saman.

Bættu vatni smám saman við þar til þú færð fullkomna áferð.


Fyrir extra creamy: bættu við smá avókadó

Fyrir meira „kick“: settu smá chili

Virkar líka sem dýfa eða sósa með bökuðu grænmeti eða taco

Next
Next

Græni galdurinn