Græni galdurinn

Ein allra besta dressingin mín 🌱

Hún er fullkomin með einföldu grænu salati og sprettum, toppað með parmesan.

Einnig ótrúlega góð í kínóa-, bankabygg- eða hrísgrjónasalöt, með bökuðu grænmeti eða í klassísku tómat- og mozzarella salat.

innihald:

  • 1-2 box af Basil, frá Vaxa, gróft saxað, því meira af Basil því betra

  • 1 bolli gæða olífu olía

  • 1/3 bolli balsamik edik

  • 1-2 msk sæta, akasiu hunang eða hlynsíróp

  • 1 hvítlauksrif, pressað

  • 3 msk ristaðar furuhnetur ( má líka nota kasjuhnetur)

  • salt og pipar

Setjið allt saman í krukku eða skál og hristið eða hrærið saman.

Dásamleg dressing með grænu salati sem tekur einfalt salat upp a glænýtt plan.

Next
Next

Þeyttur salatostur með Trönuberja salsa