Hunangsgljáðar gulrætur á rjómalagðri  fetasósu

Hunangsgljáðar gulrætur á rjómalagðri  fetasósu: Sætt mætir bragðmiklu- gullinbrúnar að utan með fínlegum ristuðum ilmi, safaríkar og bragðmiklar að innan

Tilvalið sem forréttur, meðlæti eða léttur aðalréttur.

Gulrætur

  • 4–5 meðalstórar gulrætur, skornar í lengjur

  • 1/2 rauðlaukur, skorinn í sneiðar

  • 2 msk ólífuolía

  • 1 msk hunang

  • 2 hvítlauksrif, pressuð eða smátt söxuð

  • Smá salt (valkvætt)

Rjómalöguð fetasósa

  • 2 msk fetaostur

  • 1–2 msk laktósalaus sýrður rjómi

  • Smá salt

  • Pipar eftir smekk

  • 1/2 tsk paprikuduft

  • 1/2 tsk kóríander duft

  • 1/2 tsk kóríander duft

  • 1/2 -1 box fersk steinselja, smátt söxuð

  • 1 lítið hvítlauksrif, pressað


Aðferð

Settu gulrætur og rauðlauk á bökunnarpappir. Bættu við ólífuolíu, hunangi og hvítlauk og blandaðu vel svo allt hjúpist.

Settu í airfryer við 180°C í 15-20 mínútur, eða þar til gulræturnar eru mjúkar og gylltar (hristu körfuna einu sinni á meðan).

Fetasósa:

Settu allt í mixer eða notaðu töfrasprota til að mauka allt saman. Blandið þar til sósan verður mjúk og rjómakennd og fagur græn á litinn.

Berið fram með því að dreifa úr sósunni a disk og setjið gulræturnar og laukinn ofaná. Toppið með sprettum, ferskum kryddjurtum og jafnvel smá af chiliflögum og graskersfræjum.


Next
Next

Grænt og vænt bankabyggsalat