Grænt og vænt bankabyggsalat
Dásamlega gott bankabyggsalat sem gefur þér trefjar og plöntuprótein til að halda orkunni stöðugri og góðri. Nóg af grænu þí jú vallt íer betra með miklu grænu og hér höfum við kryddjurtir, brokkolí og agúrku
Svo er þessi dressing auðvitað alveg punkturinn yfir i -ið með rifnum parmesan út i. Ljufengt og matarmikið salat eitt og sér eða með kjöt og fisk.
Fyrir 4
Innihaldsefni:
200 gr bankabygg, skolað
750 ml grænmetissoð
1/3-1/2 haus brokkolí, fínt saxað
1/2 agúrka, söxuð í smáa bita
2 stilkar vorlaukur, fínt saxaður
1 box klettasalat VAXA
1 box af basil VAXA
30 gr ristaðar furuhnetur til að toppa í lokin.
Dressing:
5 msk ólífuolía
1 tsk gróft sinnep
1 hvítlauksrif, pressað
Safi og börkur af 1 sítrónu
1 tsk akasíuhunang ( valfrjálst)
5 msk rifinn parmesanostur, má líka nota 2 msk næringarger
Sjávarsalt og svartur pipar
Aðferð:
Skolið vel bankabyggið yfir vatni. Setjið í pott ásamt grænmetissoðinu. Fáið suðuna upp og lækkið svo í lágan hita og setjið lok á pottinn og lofið öllu vatni að gufa upp. Tekur ca 25 mínútur fyrir bankabyggið að verða soðið. Mér finnst alveg gott að hafa það ekki alveg mauksoðið og með smá biti í ;)
Á meðan byggið er að eldast, saxið grænmetið og kryddjurtirnarblandið. Setjið allt fyrir dressinguna í krukku og hrærið vel saman.
Þegar bankabyggið er soðið og allt vatn gufað upp, færið það þá yfir í stóra skál, hrærið öllu græna saman við og hellið dressingunni yfir og hrærið aftur. Það má alltaf bæta við meira af parmesan og auka salt og pipar og toppa með ristuðum furuhnetum.