Kjúklingabauna og grænmetissalat með tahini dressingu
Innihald: (2 skammtar)
200 gr soðnar kjúklinga baunir (skolaðar )
100 gr kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
100 gr agúrka, smátt skorin
50 gr rauð paprika, skorin í litla bita
30 gr rauðlaukur, saxaður
15 gr fersk steinselja, söxuð
15 gr fersk basilíka, söxuð
Dressing:
1 msk gæða ólífuolía (15 ml) (má sleppa og nota vatn)
1 msk tahini, sesamsmjör (15 g)
1 msk Feel Iceland kollagen duft (valfrjálst fyrir auka prótein)
1 tsk cumin duft
1 msk sítrónusafi (15 ml)
1-2 msk vatn ( fer eftir hversu þykka/þunna sósu þú vilt)
Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
Blandaðu saman kjúklingabaunum, grænmeti og kryddjurtum í skál.
Hrærðu saman tahini, kollagen, ólífuolíu/vatni, sítrónusafa, og kryddi og helltu yfir.
Hrærðu allt saman og njóttu
Einstaklega bragðgott, fyllandi og trefjaríkt salat: kjúklingabaunir + grænmeti = yfir 10 gr trefjar per skammt.