Vanillu chia búðingur

  • 250 gr létt grísk jógúrt frá Örnu

  • 100 gr tilbúið chiagel (sjá uppskrift að neðan)

  • ½–1 tsk vanilluduft eða vanilludropar

  • 1–2 tsk akasíuhunang (eftir smekk)

Aðferð:

Hrærið jógúrt, vanillu og sætu saman.

Blandið chiagelinu varlega út í.

Berið fram með ferskum berjum, ristuðum kókosflögum eða smá granóla.

Chiagel:

  • ¼ bolli (ca. 40 g) chiafræ

  • 1 bolli mjög heitt (240 ml) vatn

Hrærið saman, látið standa í 10 mínútur, hrærið aftur og kælið. Geymist í kæli í um það bil 5 daga.

Til að gera búðinginn enn trefjaríkari getur þú bætt við:

  • 1 msk möluðum hörfræjum

  • 1 tsk psyllium-husk (gætir þurft að setja örlítið meiri vökva ef hann verður of þykkur).

  • Berjum eins og hindberjum eða bláberjum, sem eru trefjarík.

Þetta er saðsamur morgunverðar- eða millimál sem gefur bæði gott magn af próteini og trefjum.

Next
Next

Bounty -granóla