Bounty -granóla

Ef þú elskar samsetninguna af súkkulaði og kókos þá á þetta granóla eftir að heilla þig. Þessi uppskrift er stökk, ilmandi og full af dásamlegu bragði sem minnir á pínu á Bounty – en að sjálfsögðu gerð úr næringarríkum hráefnum.

Mér finnst ekkert betra en að strá þessu granóla yfir skyr, gríska jógúrt eða smoothie-skál, en virkar líka oft sem smá snakk hjá mér og gerir morgunmatinn að smá dekurstund.

Þessi uppskrift er einföld að útbúa, geymist vel og er fullkomin til að eiga tilbúna fyrir annasama morgna. Ég vona að hún verði jafn mikið uppáhald hjá þér og hún er hjá mér.

Hráefni:

  • 4 bollar tröllahafrar

  • 1 bolli sólblómafræ

  • ½ bolli hörfræ

  • ½ bolli kókosmjöl

  • 3–4 msk kakó

  • 2 tsk kanill

  • 1–2 tsk pumpkin spice

  • 1 tsk vanilluduft eða 2 tsk vanilludropar

  • ½ tsk sjávarsalt

  • ⅓ bolli brædd kókosolía

  • ⅓ bolli akasíuhunang

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 160°C (150°C með blæstri).

2. Blandið saman höfrum, sólblómafræjum, hörfræjum, kókosmjöli, kakói, kanil, pumpkin spice, vanillu og salti.

3. Hrærið saman bræddri kókosolíu og akasíuhunangi og hellið yfir þurrefnin. Blandið þar til allt er vel hjúpað.

4. Dreifið blöndunni á bökunarplötu klædda bökunarpappír.

5. Bakið í 20–25 mínútur og hrærið varlega einu sinni eða tvisvar á meðan.

6. Látið granólað kólna alveg áður en það er sett í loftþétt ílát.

Til að fá enn meira bragð má bæta við eftir bakstur:

Til að bæta við extra góðgæti, prófið að setja :

  • ristuðar kókosflögur

  • Döðlubitum

  • kakónibbum eða söxuðu dökku súkkulaði þegar granólað hefur kólnað.

Njótið vel ;)

Next
Next

Matcha Mangó chia búðingur