Matcha Mangó chia búðingur
Matcha Mango Chia-búðingur
Fyrir 1–2 skammta
200 g létt grísk jógúrt frá Arna
1 tsk matcha-duft
2–3 msk chia-gel*
75 gr frosið mangó (látið þiðna örlítið)
1–2 tsk akasíuhunang
Aðferð:
Settu grísku jógúrtina, matcha-duftið, chia-gelið, mangóið og akasíuhunangið í skál.
Hrærið vel saman þar til blandan verður silkimjúk og kremkennd.
Settu í glas eða skál og láttu standa í 10–15 mínútur ef þú vilt þéttari áferð.
Toppaðu með nokkrum mangóbitum og örlitlu akasíuhunangi rétt áður en borið er fram.
Próteinríkur, trefjaríkur og einstaklega ferskur búðingur sem hentar vel í morgunmat, millimál eða sem hollur. eftirréttur.
Af hverju þessi búðingur er góður
Mangó gefur C-vítamín og náttúrulega sætu.
Matcha er ríkt af andoxunarefnum og gefur mjúka, jafnari orku.
Chia-fræ eru trefjarík og innihalda omega-3 fitusýrur sem stuðla að góðri mettun.
Létt grísk jógúrt er próteinrík og hjálpar til við að halda blóðsykri stöðugri og mettun lengur.
*Chia-gel
1 dl chia-fræ
5 dl sjóðandi vatn
Aðferð:
Settu chia-fræin í skál eða krukku.
Helltu sjóðandi vatninu yfir og hrærðu strax mjög vel í 1–2 mínútur til að koma í veg fyrir kekki.
Láttu standa í um 10 mínútur og hrærðu aftur.
Þegar gelið hefur kólnað skaltu loka krukkunni og geyma í ísskáp.
Geymsla: Chia-gelið endist yfirleitt í 5–7 daga í vel lokaðri krukku í ísskáp
Hlutfall sem er gott að muna
1 hluti chia-fræ : 5 hlutar vatn
Þá færðu þykkt en mjúkt gel sem er fullkomið í chia-búðinga, smoothie, hafragraut eða til að hræra út í jógúrt.
Gott ráð: Ef þú notar vatn sem er sjóðandi heitt/soðið vatn verður gelið tilbúið mun hraðar en ef þú notar kalt vatn, en mundu alltaf að hræra vel strax í byrjun svo fræin loði ekki saman.