Heimagerð & ljúfeng Hafrastykki

Hér er afareinföld og hreinn uppskrift að hafrastykkjum sem er frábært að grípa í ef manni langar í eitthvað ljúffengt og saðsamt snarl. Fullkomin trefjarík stykki

Hráefni:

  • 200 gr döðlur, steinlausar frá Muna

  • 2 dl haframjöl frá Muna

  • 1/3 bolli valhnetur frá Muna, gróft saxaðar

  • 3 msk möndlusmjör frá Muna

  • ½ tsk vanilla

  • Smá af salt

  • 1–2 msk vatn (ef þér finnst þurfa)

  • 50 gr gæða súkkulaði

Aðferð:

Settu döðlurnar í heitt vatn í um 30 mínútur til að mýkja þær.  Helltu svo vatninu af og stappaðu döðlurnar í mauk eða settu þær í matvinnsluvél og maukaðu þar.

Settu döðlumaukið í skál hrærðu möndlusmjöri, vanillu, salti við. Bættu svo við höfrunum og valhnetunum og hrærðu deigið saman. – bættu smá vatni við ef það er of þurrt.

Þrýstu blöndunni í form klætt bökunarpappír, skerðu í hæfileg stykki,

Bræddu súkkulaðið yfir vatnsbaði og dreifðu yfir stykkin.

Kældu í ísskáp/ frysti í minnst 1 klukkustund. Geymast vel í frysti í loftþéttu boxi í frysti.

Nældu þér í stykki og stykki og njóttu vel✨

uppskrift gerð í samstarfi við Muna

Next
Next

Súkkulaði fudge