Gleði hormóna fræ & hnetubitar

“nærandi snack” ekki bara orkubiti.


  • 1 bolli ristaðar möndlur eða valhnetur

  • 1/4 bolli graskersfræ

  • 1/3 bolli sólblómafræ

  • 1/4 bolli chia fræ

  • 1/4 bolli hampfræ

  • 1/4 bolli hörfræ (mulin eða heil)

  • 1/3 bolli hafrar

  • 1/4 tsk sjávarsalt

  • 1 tsk kanill

  • 2 bollar mjúkar döðlur (steinlausar)

  • ½ bolli möndlusmjör eða hnetusmjör

  • 1–2 msk kókosolía (brædd)

  • 1 tsk vanilla

Súkkulaðitoppur:

  • 100–120 g dökkt súkkulaði (70–85%)

  • 1 tsk kókosolía

  • smá salt og börkur af lífrænni appelsínu

Settu allt nema súkkulaði toppinn í matvinnsluvél og maukaðu þar til allt verður eins og deig, fer eftir döðlunum, gætir þurft 1 msk af vatni til að bleyta örlítið meira.

Þrýstu blöndunni fast niður í platta/form með bökunarpappír.

Bræddu súkkulaði með kókosolíu og smyrðu yfir.

Stráðu smá salti og rífðu börk af appelsinu yfir, settu í frysti í um 1 klukkustund

Skerðu í stangir eða ferninga. Geymdu í frysti í boxi og nældu þér í nærandi mola þegar þig langar í eitthvað einstaklega trefja og næringarríkt.

Af hverju þær eru þessir bitar góðir fyrir hormónana okkar

• Magnesíum → slökun og minni streita

• Heilbrigð fita → stöðugur blóðsykur

• Trefjar → góð melting

• Döðlur → náttúruleg orka

Þeir styðja blóðsykur, streitukerfi, hormónajafnvægi og orku á mjög náttúrulegan hátt.

Hér er hvernig hvert lykilhráefni vinnur fyrir líkamann:

  • Heilbrigð fita → stöðug hormónaframleiðsla

Hnetur, fræ og hnetusmjör eru rík af omega-3 fitusýrum sem eru byggingarefni fyrir hormóna.

Hormón eins og estrogen, progesterone og cortisol eru framleidd úr fitu.

Nóg af góðri fitu hjálpar líkamanum að halda jafnvægi í hormónakerfinu.

-Styður heilastarfsemi

-Minnkar bólgur

-Heldur þér saddri lengur

—————

  • Magnesíum → slökun og minni streita

Graskersfræ, möndlur og dökkt súkkulaði eru mjög rík af magnesíum.

Magnesíum:

-róar taugakerfið

-hjálpar við svefn

-minnkar streituhormónið cortisol

-getur minnkað PMS einkenni

Magnesíum skortur er einn algengasti næringarskortur hjá konum.

  • Náttúrulegur sykur + trefjar → stöðugur blóðsykur

Döðlur + hafrar + fræ gefa hæga orku vegna trefja.

Þetta þýðir:

-Færri blóðsykursveiflur

-Minni orkudýfur

-Minni löngun í sykur seinna

Stöðugur blóðsykur er lykilatriði fyrir jafnvægi í:

• insulin

• cortisol

• kynhormónum

  • Trefjar → hormóna detox

Trefjar hjálpa líkamanum að losa sig við umfram hormón (sérstaklega estrogen) í gegnum meltinguna.

Þetta styður hormónajafnvægi og getur minnkað:

• uppþembu

• hormónasveiflur

• húðvandamál

  • Tryptophan + polyphenols → betra skap

Valhnetur, chia og dökkt súkkulaði innihalda efni sem styðja framleiðslu á serotonin (“feel good” boðefni).

Getur hjálpað við:

• skap

• ró

• löngun í sætindi

  • Prótein → stöðug orka og minni stress á líkamann

Hnetur og fræ innihalda plöntuprótein sem hjálpar að:

-halda blóðsykri stöðugum

-byggja upp vöðva

-styðja hormónakerfið

Þessir bitar styðja:

-Taugakerfið

-Hormónajafnvægi

-Blóðsykur

-Orku yfir daginn

-Meltingu

-Heilastarfsemi

-Minni bólgur


Next
Next

Heimagerð & ljúfeng Hafrastykki