Súkkulaði fudge
250 gr laktósafrí grísk jógúrt frá Arna
200 gr dökkt gæða súkkulaði
1–2 msk hunang eða hlynsíróp (valfrjálst)
Smá salt
Aðferð
Bræddu súkkulaðið varlega yfir vatnsbaði.
Hrærðu því næst grísku jógúrtinni saman við þar til blandan verður slétt.
Bættu við sætu ef þu vilt nota.
Settu í lítið form með bökunarpappír.
Kældu í frysti í 1–2 tíma
Skerðu í bita og geymdu í lokuðu íláti í frysti.
Gott að setja ofan á
• gróft salt
• Saxaðar hnetur
• Kókosflögur
Best með 70% dökku gæða súkkulaði
Með flottu magni af prótein og auðvitað gæða súkkulaði sem inniheldur: Flavónóíða (andoxunarefni) sem auka blóðflæði til heilans & smá magn af koffín og theobromine sem geta aukið einbeitingu og orku 🤎