Granola nammi bitar
Granóla nammilmolar með dökku súkkulaði & söxuðum möndlum
Hráefni (ca. 20–25 molar)
1 bolli grófir hafrar
½ bolli saxaðar möndlur
½ bolli saxaðar döðlur
2 msk chiafræ
2 msk hörfræ
½ tsk sjávarsalt
1 tsk kanill
2 msk kókosolía, brædd
3 msk hunang eða hlynsíróp
1 tsk vanilludropar
100 gr dökkt súkkulaði (70–85%), saxað gróft
Aðferð:
Settu allt nema súkkulaðið á pönnu og lofaðu öllu að blandast vel saman við miðlungs hita. Hrærðu vel í. Lofaðu þessu að hitna vel saman og eldast í nokkrar mínútur.
Bræddu súkkulaðið yfir vatnsbaði og helltu svo yfir og blandaðu vel saman. Mótið litla molana með skeið eða höndum og raðið á bökunarpappír á plötu sem passar inn i frysti. Setjið í frysti í 30–40 mínútur þar til þeir eru orðnir fastir.Getið líka dreift úr á bökunnarpappír og lofað að frosna einu stóru stykki og brotið svo í litla bita þegar stykkið er frosið.
Flytjið í loftþétt ílát – geymist í frysti í allt að 2 mánuði.
• Má bæta við rifnum kókos, appelsínuberki eða sjávarsalti ofan á
• Taktu 1–2 mola beint úr frysti – þeir þiðna á nokkrum mínútum g njóttu