Súkkulaði fudge

Súkkulaði fudge einungis 2 hráefni

• 200 gr dökkt súkkulaði (70–85%)

• 150 gr grísk jógúrt (þykk og ósykruð)

Aðferð:

Bræddu súkkulaðið varlega í vatnsbaði. Láttu súkkulaðið kólna örlítið. Hrærið grísku jógúrtinni saman við þar til blandan er alveg slétt og glansandi. Dreifið úr á bökunnarpappírsklæddan bakka sem passar í frysti. Líka hægt að hella í lítil sílíkonform. Setjið í frysti /kæli í 1–2 klst, eða þar til fudgið er vel kælt og klárt. Skerið í bita og njótið.

Valfrjáls til að breyta aðeins uppskriftinni :

• Smá vanilludropar

• Klípa af sjávarsalti ofan á

• Hakkaðar hnetur, kókosflögur eða hindber ofan á

Mjög einfalt, próteinríkt og án viðbætts sykurs ef þú velur gott dökkt súkkulaði.

Previous
Previous

Heimagerð & ljúfeng Hafrastykki

Next
Next

Granola nammi bitar