Hlaðið byggsalat með kryddjurtadressingu
1 bolli soðið bankabygg
1 tómatur, skorinn í litla bita
1 rauð paprika, skorin i litla bita
1/3 rauðlaukur, skorinn í litla bita
1/2 epli, skorið í litla bita
1/3 bolli bláber
6-8 döðlur, skornar i litla bita
1/3 bolli rifinn parmesan
1/4 bolli sesamfræ
Kryddjurtadressing
1 box steinselja, söxuð smátt
1 box mynta, söxuð smátt
1 msk þurrkað oregano
1/3 tsk hvítlaukskrydd eða eitt pressað hvítlauksrif
2 msk hvítvínsedik
Nokkrar msk ólífuolía
Salt og pipar
Hrærið dressinguna saman.
Sjóðið bankabygg eins og segir til á pakkanum. Ég sýð oft ríflega og á kalt inni í ísskáp til að nota í salat eins og þetta.
Þegar þið eruð búin að skera allt í salatið í litla bita. Takið þá stóra skál og setjið allt saman, hellið dressingunni yfir og blandið vel.
Frábært salat eitt og sér eða sem meðlæti. Smakkast líka mjög vel daginn eftir.