Súkkulaði & kirsuberja hafrar

Þessi grautur er ótrúlega góður og ríkur af próteini & trefjum eða um 20 gr af trefjum.

Kirsuber eru eitt af fáum náttúrulegum matvælum sem innihalda melatónín,  sem er hormón sem líkaminn framleiðis til að stjórna svefn og vökuhringnum ( circadiam rhythm) Melatónín getur bætt gæði og dýpt svefns.

  • 1/3 bolli hafrar fra Muna

  • 10 gr chia

  • 15 gr hörfræ

  • 1 msk kakó

  • 150 ml mjólk

  • 50 gr laktósafrí grísk jógúrt frá Arna

  • 100 gr steinlaus frosin kirsuber

  • 1 msk akasíu hunang

    Blandið þessu öllu saman í krukku og hrærið vel og setjið í ísskáp yfir nótt. Frábær morgunverður sem heldur þér söddum og lengi.  Kirsuber eru rík af andoxunarefnum.

Next
Next

Krukkugrautur, trefjaríkur & saðsamur