Súkkulaði hafragrautur með stracciatella grískri jógúrt
Næringarríkur og mettandi morgunmatur – einstaklega ljúffengurm próteinríkur, trefjaríkur og gefur jafna orku.
Hráefni (2 skammtar)
1 bolli grófir hafrar
2 dl vatn
1 msk kakó
1/2 tsk kanil duft
1 msk akasíuhunang
örlítið salt
Topping:
1/2-1 dós Stracciatella grísk jógúrt frá Arna
1 tsk hampfræ
1 msk gæða súkkulaði
Aðferð:
Settu hafra, vatn, kakó, kanil og smá salt í pott. Sjóðið við meðalhita í um 5–7 mínútur, hrærið reglulega þar til grauturinn þykknar.
Takið af hellu og hrærið akasíuhunangi saman við. Setjið grautinn í skál og toppið með Stracciatella grískri jógúrt, smá dökku súkkulaði og hampfræjum.