Vanillu & möndlu chia búðingur

  • 1 bolli grísk jógúrt (250 gr) eða vanillu skyr

  • 1/4 bolli chia gel *( bleytt chia fræ)

  • 1 msk akasíuhunang frá MUNA

  • 1 tsk vanilla

  • 1 msk Feel Iceland kollagen duft ( valfrjálst)

  • 1 msk möndluflögur + auka til að toppa

Hindberjasulta : auðvelt að breyta og nota sin uppáhalds ber

  • 1/3 bolli frosin hindber

  • 1 msk akasíuhunang frá MUNA


Lofið hindberjunum að þiðna og hrærið saman hunangið við -

*Gerið chia gelið fyrst (mjög gott að eiga inn í ísskáp í lokaðri krukku til að nota út á grauta og í boozt. )


Blandið jógúrt/skyr, chia geli, sætu, vanillu , kollagen  möndluflögum  saman í skál, hrærið vel saman.

Setjið glös eða skálar og njótið svona eða toppið með hindberjasultu og sma auka möndluflögum - dásamlegur búðingur/grautur sem hentar í hvaða mál sem er.


*Chia gel :

  • 2 msk chia fræ frá MUNA

  • 1 dl vatn

    Settu chia fræin og vatn í krukku, lokaðu krukkunni og hristu vel

Láttu standa í 5 mínútur og hristu aftur  (til að koma í veg fyrir kekki).

Settu í kæli og leyfðu að standa í um 15 mínútur. Geymist í kæli í 4-5 daga

Previous
Previous

Krukkugrautur, trefjaríkur & saðsamur

Next
Next

Frábært epla "salat" með trönuberjum og valhnetum