Vetrar grænmetis- og kjúklingasúpa með graskeri
Næringarmikil súpa. Fullkomin sem máltíð í hádeginu eða léttur kvöldmatur
Prótein úr kjúkling og linsubaunum
Beta-karótín úr graskeri, gulrótum og sætum kartöflum
Trefjar sem styðja meltingu
Hráefni (4–6 skammtar)
2 msk ólífuolía
1 laukur, saxaður
1 púrrulaukur, sneiddur
2 hvítlauksrif, smátt söxuð
300 g grasker (butternut eða annað), teningar
2 gulrætur, sneiddar
1 stór sæt kartafla, teningar
1 paprika (appelsínugul eða rauð), teningar
1 dós (400 g) niðursoðnir tómatar
1 lítri kjúklingasoð (eða grænmetissoð)( kraftur og vatn)
2 kjúklingabringur, skornar í bita
1 tsk paprikuduft
½ tsk cumin
½ tsk timían eða rósmarín
Salt & pipar eftir smekk
Auka sem ég mæli alveg með :
1 dl rauðar linsubaunir (gera súpuna þykkari og próteinríkari)
Handfylli ferskt grænt í lokin.
Safi úr ½ sítrónu til að fríska upp á bragðið
Aðferð
Hitaðu olíu í stórum potti. Mýktu lauk og púrrulauk í 3–4 mín. Bættu hvítlauk út í síðustu mínútuna.
Settu kjúklingabitana út í, kryddaðu og brúnaðu létt. Settu grasker, gulrætur, sæta kartöflu og papriku í pottinn. Hrærið saman.
Helltu niðursoðnum tómötum og soði yfir. Bættu linsubaunum út í ef þú ætlar að nota þær.
Láttu malla í 20–25 mín þar til allt er mjúkt.
Bættu babyleaves/ spínati/grænkáli út í síðustu 2–3 mín. Smakkaðu til með salti, pipar og smá sítrónusafa.